Almennur fundur fyrirlesari.

18.03.2019

Fundur no. 786. Dagskráin var hefðbundin . Ræðumaður var Jóhann Helgi Hlöðversson.

Það kom fram hjá Jóhanni að fjölskyldan settist að í Vatnsholti 2005.  Árið 2010 opnuðu þau sveitagistiheimilið Vatnsholt með 14 gestaherbergjum. Skömmu síðar færðu þau enn út kvíarnar og í dag geta þau boðið 34 gistiherbergi og veitingasali fyrir allt að 300 manns.

Jóhann Helgi sagði einnig frá för þeirra hjóna til Norður Kóreu. Þetta var skemmtilegt og fróðlegt hjá Jóhanni sem sýndi myndir og myndbönd með erindi sínu.